• Lyftur
    • Fólkslyftur
      • Schindler 3000

        Sveigjanleg lausn sem sameinar form og virkni. Fjölhæf lyfta sem hentar mörgum tegundum bygginga til notkunar innanhús.

      • Schindler 5000

        Schindler 5000 farþegalyftan samþættir nýjustu tækni til að ná styttri ferðatíma fyrir fleiri farþega með bestu ferðagæðum.

      • Schindler 5500

        Notkun og útlit tekið á næsta stig. Öflugar farþegalyftur fyrir atvinnuhúsnæði, verslanamiðstöðvar, hótel, skrifstofur, sjúkrahús og samgöngumiðstöðvar.

    • Vörulyftur og aðrar lyftur
      • Schindler 2400

        Ef þörf er fyrir mikla flutninga innanhúss, skiptir máli hvað lyftan er stór.

      • Schindler 2500

        Lyftur sem renna ljúflega milli hæða og af öryggi skipta höfuðmáli þegar í hlut á fólk í sjúkrarúmum eða í hjólastólum. Aðgengi í Schindler 2500 lyftuna og úr henni er án hindrana fyrir sjúklinga.

      • Schindler 2600

        Ef svo er hafa vöru- og fólkslyftur af gerðinni 2600 alla burði til að mæta þínum þörfum hvort sem er í vöruhúsnæði, verslanamiðstöðvum eða iðnaðarhúsnæði.

    • Endurnýjun
      • Schindler 3000 Plus

        Schindler 3000 Plus lyftan er hönnuð til að vera sveigjanleg og til að falla fullkomlega í þína byggingu.

      • Schindler 6500

        Schindler 6500 lyftunni fylgir nýjasta tækni áfangastaðastýringar sem greiðir leið og flýtir för þegar mikið liggur við.

      • Íhlutir og pakkalausnir

        Þarf lyftan uppfærslu að hluta? Íhluta-lausn Schindler býður upp á sveigjanlega og hraða afgreiðslu.

    • Áfangastaðastýring
      • PORT Technology

        PORT er bylting í þeirri tækni að hámarka flæði fólks um hús en að auki býður það persónulega þjónustu og aðgangsstýringu.

    • Pakkar
      • Aðgengi fyri alla!

        Okkar lyftur sem eru útbúnar Aðgengispakka (Easy Access package) veita öllum farþegum aðgengilega notkun, óháð mögulegri fötlun.

      • Fjölbýlishús

        Fjölbýlishúsapakkinn okkar hjálpar þér að gera húsið þitt að rólegu og velkomnu rými. Það veitir aukið öryggi, hönnun og hugarró þegar þú ferð með lyftunni.

      • Skrifstofur

        Skrifstofupakkinn okkar fyrir lyftur hjálpar til við vandamálalausar og skilvirkar flutningslausnir fyrir skrifstofubyggingar - og viðhalda þeim í toppstandi.

      • Þakíbúð

        Þakíbúðapakkinn fyrir lyftur eykur þægindi og öryggi sem gefur eigendum og gestum þeirra beinan aðgang að þakíbúðinni.

  • Rennistigar & göngubönd
    • Rennistigar
      • Schindler 9300

        Rennistiga af gerðinni Schindler 9300 má auðveldlega laga að kröfum byggingarnar. Einu gildir hvort um er að ræða verslanamiðstöð, bíóhús með mörgum sölum, safn, skóbúð eða samgöngumiðstöð.

      • Schindler 9700

        Rennistigi af gerðinni 9700 hentar vel til að greiða för gangandi fólks á stórum, opnum svæðum þar sem flæði er jafnan mikið, svo sem á flugvöllum og jarðlesta- og járnbrautarstöðvum.

    • Göngubönd
      • Schindler 9500AE hallandi

        Hallandi göngubandið Schindler 9500AE er hannað sérstaklega fyrir verslanamiðstöðvar. Á því má fara á hljóðlátan og notalegan hátt milli hæða og hvíla lúin bein á meðan.

      • Schindler 9500 lárétt

        Lárétta göngubandið Schindler 9500 er tilvalin lausn fyrir flutning allt að 150 metrum. Með þrepbreidd allt að 1400 mm, ...

    • Endurnýjun
      • Full útskipti

        Uppfærið eignina með því að endurnýja eldri búnað með nýjum byltingarkenndum Schindler 9300 eða Schindler 9700 rennistigum eða Schindler 9500 gönguböndum.

      • Inní grind

        Búnaður í rennistiga/göngubandi er fjarlægður, en grindinni er haldið. Nýr Schindler rennistigi eða gönguband er sett saman í núverandi grind.

      • Endurnýjunarsett

        Schindler býður endurnýjunarlausnir á öllum sviðum: öryggi, orkunýting og útlit, allt hannað til að uppfæra rennistigana þína og göngubrautir, á skjótan og auðveldan hátt.

  • Viðhaldsþjónusta
  • Starfsframi
  • Einingar
  • Um okkur
  • Tengiliðir
Hannið

Persónuverndaryfirlýsing

Síðast uppfært október 2022

Takk fyrir að heimsækja (eina af) vefsíðum Schindler samstæðunnar ("síða" eða "síður") Schindler Holding Ltd. og/eða hlutdeildarfélaga þess ("Schindler") og áhuga þinn á Schindler vörum og þjónustu.

1. Inngangur

Schindler leitast við að heiðra friðhelgi og öryggi notenda okkar, viðskiptavina og birgja, sem og fulltrúa þeirra, í tengslum við allar vörur, þjónustu, kerfishluta og vefsíður sem veittar eru af Schindler Holding Ltd. og hlutdeildarfélögum þess sem gegna hlutverki ábyrgðaraðila gagna samkvæmt gildandi gagnaverndarlögum. Þú getur fundið tengiliðaupplýsingar um slíka ábyrgðaraðila gagna hjá Schindler á þessari síðu.


2. Tilgangur síðnanna

Síðurnar veita upplýsingar um Schindler
Síðurnar veita almennar upplýsingar um Schindler, vörurnar, lausnirnar og þjónustuna, starfstækifæri og upplýsingar fyrir fjárfesta.

Sumar síðurnar hafa sérstök eyðublöð sem áhugasamir gestir síðunnar geta notað til að biðja um frekari upplýsingar varðandi Schindler vörur og þjónustu.

Upplýsingar um gagnavinnsluaðgerðir sem tengjast Schindler ráðningargátt eru veittar á aðskilinn hátt fyrir skráningu í ráðningargáttinni. Frekari upplýsingar má finna á eftirfarandi tengli: https://job.schindler.com/.


3. Tilgangur þessarar persónuverndaryfirlýsingar

Þessi persónuverndaryfirlýsing útskýrir hvernig við meðhöndlum og vinnum með persónulegu gögnin þín
Schindler meðhöndlar persónuleg gögn í samræmi við gildandi gagnaverndarlög. Þar af leiðandi höfum við gefið út þessa persónuverndaryfirlýsingu ("persónuverndaryfirlýsing"). Hún lýsir hvernig við söfnum og vinnum persónuleg gögn frekar (i) þegar þessi síða er heimsótt, group.schindler.com eða einhverjar aðrar síður eða (ii) þegar þú notar vörur okkar eða þjónustu eða (iii) þegar þú átt önnur samskipti við okkur.

Þessi persónuverndaryfirlýsing lýsir tegund persónulegra gagna sem Schindler safnar, söfnunaraðferðinni og í hvaða tilgangi Schindler getur notað, samnýtt eða afhjúpað slík persónuleg gögn.

Hugtakið "persónuleg gögn" í þessari persónuverndaryfirlýsingu þýðir allar upplýsingar sem auðkenna, eða gætu að öllum líkindum verið notaðar til að bera kennsl á einstakling.

Þessi persónuverndaryfirlýsing er ekki endilega heildstæð lýsing á gagnavinnslu okkar. Mögulegt er að aðrar gagnaverndaryfirlýsingar (eða almennir skilmálar og skilyrði eða sambærileg skjöl) séu gildandi við sérstakar kringumstæður.

Ef okkur eru veitt persónuleg gögn annarra einstaklinga
Ef okkur eru veitt persónuleg gögn annarra einstaklinga (líkt og fjölskyldumeðlima, vinnufélaga) er það á þína ábyrgð að tryggja að viðeigandi einstaklingum sé kunnugt um þessa persónuverndaryfirlýsingu og gefa okkur einungis þeirra gögn ef þér er heimilt að gera það og séu slík persónuleg gögn rétt.


4. Hvernig á að hafa samband við okkur

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir varðandi þessa persónuverndaryfirlýsingu, persónuupplýsingar þínar eða persónuvernd gagnvart Schindler, vinsamlegast hafðu samband við okkur hjá:

HÉÐINN Schindler lyftur ehf
Gjótuhrauni 4
220 Hafnarfjörður
Phone: +354 565 3181
Email: schindler@schindler.is

Ofangreindur aðili er ábyrgðaraðili gagna fyrir þetta vefsvæði samkvæmt gildandi gagnaverndarlögum.


5. Hvernig söfnum við og vinnum persónuleg gögn þín

Hvenær, hvernig og hvaða tegund persónulegra gagna við söfnum
Schindler meðhöndlar persónuleg gögn í samræmi við gildandi gagnaverndarlög. Við getum safnað persónulegum gögnum þínum í viðskiptum okkar, þar með talið með notkun þinni á síðunum.

Sumar síðurnar hafa sérstök eyðublöð sem þú getur notað til að biðja um frekari upplýsingar varðandi Schindler vörur og þjónustu. Þegar slík beiðni er send eða upplýsingar eru sendar til Schindler á rafrænan hátt hvernig sem er (t.d. með veftengiformi, tölvupósti, með því að fylla út skoðanakönnun viðskiptavina eða svareyðublað, með þátttöku í samkeppni o.s.frv.) geturðu verið beðin/nn um að veita tilteknar upplýsingar, þ.m.t. en ekki takmarkað við tengiliðaupplýsingar þ.e. nafn þitt, titil, fyrirtæki, heimilisfang, símanúmer, tölvupóstfang eða tegund rekstrar.

Við getum sjálfkrafa skráð tilteknar tækniupplýsingar
Með því að nota síðurnar okkar eru tilteknar tækniupplýsingar og aðrar upplýsingar sjálfkrafa birtar af tölvunni þinni til okkar og skráðar af okkur (líkt og netfangið, tegund vafra, síðan sem vísaði þér á þína síðu) í rekstrar- og öryggistilgangi, og til að skilja betur notkun vefsíða okkar. Skoðið 15. hluta þessarar persónuverndaryfirlýsingar ("Vefkökur og aðrar leiðir til auðkenningar").


6. Tilgangur vinnslu, flokkar persónulegra gagna, lagagrundvöllur

Skoðið neðangreinda töflu til að sjá í hvaða tilgangi við vinnum persónuleg gögn (notkun, geymsla, samnýting o.fl.), hvaða flokka persónulegra gagna við vinnum, sem og lagagrundvöllinn fyrir slíka vinnslu.

MarkmiðFlokkar persónulegra gagnaLagagrundvöllur
Þegar þú heimsækir þetta vefsvæði
Persónulegu gögnin (annálaskrárnar) sem vefþjónarnir okkar safna sjálfkrafa þegar þú heimsækir þetta vefsvæði gera okkur kleift að verja virkni þessa vefsvæðis og bæta og sérsníða upplifun þína sem notanda.
IP-tala tækisins þíns, stýrikerfi þess og vafrinn sem notaður er, dagsetning og tími.Grundvöllurinn fyrir vinnslu persónulegu gagnanna þinna eru lögmætir hagsmunir okkar af umsjón með vefsíðunni og notendaupplifun þinni.
Áskrift að fréttabréfi
Persónulegu gögnin sem við söfnum gera okkur kleift að senda þér fréttabréf til að halda þér uppfærðri um vörur okkar og þjónustu.
Fornafn og eftirnafn, heiti fyrirtækis, heimilisfang, tölvupóstfang, símanúmer, upplýsingar um vöruna eða þjónustuna sem var keypt eða áhugi er á.Við vinnum persónuleg gögn byggt á þínu samþykki um að fá fréttabréf okkar. Þú getur dregið samþykki þitt til baka með því að afskrá þig frá þessari þjónustu hvenær sem er.
Þegar tengiliðabeiðni er send
Persónulegu gögnin sem við söfnum gera okkur kleift að vinna sérstakar beiðnir og svör okkar við þeim.
Tengiliðaupplýsingar og upplýsingar um tengiliðabeiðnina.Vinnsla persónulegu gagnanna er byggð á lögmætum hagsmunum okkar til að stjórna beiðninni og veita viðeigandi svar.
Þegar fjölmiðlafyrirspurn er send
Persónulegu gögnin sem við söfnum gera okkur kleift að vinna sérstakar beiðnir fjölmiðlafyrirspurna og svör okkar við þeim.
Tengiliðaupplýsingar og upplýsingar um fjölmiðlafyrirspurnina.Vinnsla persónulegu gagnanna er byggð á lögmætum hagsmunum okkar til að stjórna beiðninni og veita viðeigandi svar.
Þegar aðgangur er stofnaður á okkar síðum
Persónulegu gögnin sem við söfnum gera okkur kleift að stofna og reka aðgang fyrir þig á síðum okkar.
Fornafn og eftirnafn, heiti fyrirtækis, heimilisfang, tölvupóstfang, símanúmer sem og úthlutað reikningsnúmer og valið aðgangsorð.Vinnsla persónulegra gagna er byggð á lögmætum hagsmunum okkar til að reka og viðhalda reikningnum þínum. Mögulegt er að loka aðganginum hvenær sem er.

Þegar sótt er um starf
Persónulegu gögnin sem við söfnum gera okkur kleift að vinna starfsumsóknirnar.

Ath.: Aðeins skal sækja um starf í gegnum sérstaka atvinnuvefsvæðið https://job.schindler.com/ en um það gildir sérstök persónuverndaryfirlýsing. Umsóknir sem eru sendar eftir öðrum leiðum verða ekki teknar til greina. Að öðru leyti er viðkomandi vinnsla gagna í samræmi við þessa persónuverndaryfirlýsingu.

Tengiliðaupplýsingar, skrifleg umsókn, starfsferilsskrá og vottorð/ skírteini.Vinnsla persónuupplýsinga þinna felst í ráðstöfunum sem við gerum að beiðni þinni áður en gengið er frá ráðningarsamningi eins og þörf er til að meta hvort þú uppfyllir skilyrði fyrir störf hjá Schindler.
Þegar við notum persónuleg gögn þín í markaðstilgangi
Persónulegu gögnin sem við söfnum og vinnum með gera okkur kleift að bjóða vörur okkar og þjónustu og tengdar aðgerðir, t.d. boð á viðburði, til þín með síma, tölvupósti eða á annan hátt.
Fornafn og eftirnafn, heiti fyrirtækis, staða, heimilisfang, tölvupóstfang, símanúmer, mögulega frekari gögn nauðsynleg í markaðstilgangi.Vinnsla persónulegra gagna er byggð á lögmætum hagsmunum okkar til að bjóða þér vörur og þjónustu.

7. Sjálfvirk ákvörðunartaka, þ.m.t. prófílgreining

Við ætlum ekki að gera sjálfvirkar ákvarðanir og prófílgreiningu
Við notum ekki persónulegu gögnin frá þér til að taka ákvarðanir sem eru eingöngu byggðar á sjálfvirkri vinnslu. Til viðbótar vinnum við ekki gögnin þín sjálfvirkt með það að markmiði að meta tiltekna persónulega þætti um þig.


8. Hversu lengi varðveitum við persónuleg gögn þín

Hversu lengi varðveitum við persónuleg gögn þín
Schindler tekur öll sanngjörn skref til að tryggja að persónuupplýsingar þínar séu aðeins unnar á því lágmarks tímabili sem nauðsynlegt er í þeim tilgangi sem lýst er í þessari persónuverndaryfirlýsingu. Við vinnum og höldum eftir persónulegum gögnum eins lengi og krafist er

  • í þeim tilgangi sem við söfnuðum þeim,
  • fyrir frammistöðu á samningsgerðum skuldbindingum, þ.e. á meðan viðskiptatengsl eða starfstengsl vara (frá upphafi, á meðan á framkvæmd samningsins stendur þar til honum lýkur),
  • að hann fari að lagalegum skuldbindingum eða öðrum tilgangi vinnslunnar, sem og fyrir utan þennan gildistíma í samræmi við lagabundna varðveislu og skjölunarskuldbindingar.

Einnig má varðveita persónuleg gögn

  • í þann tíma sem hægt er að leggja fram kröfur gegn Schindler eða
  • að því leyti sem við erum að öðru leyti lagalega skuldbundin til að gera svo eða
  • ef lögmætir viðskiptahagsmunir krefjast frekari varðveislu (t.d. vegna sönnunargagna og skjölunar).

Um leið og persónulegra gagna þinna er ekki krafist í ofangreindum tilgangi verður þeim eytt eða þau gerð nafnlaus, að því marki sem mögulegt er.


9. Flutningur á persónulegum gögnum til annarra aðila (innan/utan EES)

Hver hefur aðgang að persónulegum gögnum þínum
Schindler getur einnig, samkvæmt gildu réttarferli, svo sem leitarheimild, stefnu eða dóms-/stjórnvaldsúrskurði, heimilað aðgang að öllum upplýsingum sem Schindler hefur fengið (þ.m.t. slíkum flokkum persónulegra gagna), til að fylgja slíku ferli og til að vernda réttindi og eignir Schindler. Ef ástæða er til getum við einnig leyft aðgang að þessum upplýsingum í sérstökum neyðartilvikum þar sem líkamlegu öryggi er hætta búin.

Schindler áskilur sér ennfremur réttinn til að veita allar upplýsingar sem fást frá þér eða um þig til þriðja aðila í tengslum við samruna, yfirtöku, gjaldþrot eða sölu á öllum eða meginhluta eigna Schindler.

Við samnýtum persónuleg gögn þín með öðrum Schindler einingum og þriðju aðilum fyrir utan Schindler
Persónuleg gögn þín geta verið flutt til annarra Schindler eininga, sem og til hvaða þriðja aðila sem er sem viðeigandi Schindler eining hefur undirsamninga við fyrir alla eða hluta þessarar vinnslu. Þetta getur sem dæmi náð til þjónustuveitenda rafrænnar markaðssetningar, tækniaðstoðar og hvaða annarra viðeigandi hlutverka.

Þeir munu einungis vinna slík persónuleg gögn í þeim tilgangi sem gefinn er upp í þessari persónuverndaryfirlýsingu og samþykkja að meðhöndla þau í samræmi við það. Þeir geta einungis unnið persónuleg gögn þín á sama hátt og Schindler er heimilað að vinna þau.

Við gætum flutt persónugögn þín utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES)
Þar sem Schindler er alþjóðlegt og alþjóðlega starfandi fyrirtæki geta persónulegar upplýsingar þínar verið fluttar til landa þar sem við eigum hlutdeildarfélög (sem finna má á vefsvæðinu sem gefið er upp í 1. hluta ("innganginum"). Þar á meðal kunna að vera lönd með lægra gagnaverndarstig en það land sem við höfum safnað persónulegum gögnum þínum frá.

Ef flytja á persónugögn til lands utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), tryggir Schindler beitingu fullnægjandi verndar slíkra persónugagna með viðurkenndum aðferðum (t.d. föstum samningsákvæðum um vinnslu persónuupplýsinga, í samræmi við ákvæði framkvæmdastjórnar ESB (EU Commission model clauses)).

Þú getur beðið um frekari upplýsingar varðandi slíkar ráðstafanir (þ.m.t. afrit þar sem er viðeigandi) með því að vera í sambandi við Schindler í gegnum neðangreindar tengiliðaupplýsingar.

Við seljum ekki persónuleg gögn þín
Nema annað sé ákveðið í þessari persónuverndarstefnu eða öðrum gagnaverndaryfirlýsingum sem gilda í sérstökum kringumstæðum seljum við ekki, höfum viðskipti með, leyfum eða leigjum persónuleg gögn þín til annarra þriðju aðila utan Schindler.


10. Réttindi þín

Hvernig á að fá aðgang að persónulegum gögnum þínum og nýta önnur réttindi þín
Með fyrirvara um gildandi gagnaverndarlög getur þú haft einhver eða öll eftirfarandi réttindi að því er varðar persónuleg gögn þín. Þú getur notað þessi réttindi með því að senda beiðnina til schindler@schindler.is.

Þú þarft að taka fram persónulegar upplýsingar, sem og staðfesta auðkenni þitt (t.d. afrit af nafnskírteini eða ökuskírteini). Sé beiðnin send af öðrum einstaklingi en þér, án þess að veita sönnun á því að beiðnin sé gerð á lögmætan hátt fyrir þína hönd, verður beiðninni hafnað.

Athugið að Schindler getur hafnað beiðnum sem eru utan við eða misnota viðeigandi rétt.

Athugið einnig að einhver þessara réttinda geta verið takmörkuð, til dæmis þar sem Schindler hefur umframhagsmuni eða lagaskuldbindingu til að vinna með persónuleg gögn þín.

1. Aðgangsréttindi og gagnaflytjanleiki
Þú átt rétt á að fá staðfestingu á hvort Schindler vinnur persónuleg gögn um þig og, ef svo er, fengið aðgang að afritum þeirra. Ef þú þarfnast viðbótareintaka getum við þurft að rukka ásættanlegt gjald.

Fyrir tilteknar gerðir af gögnum gætir þú einnig átt rétt á gagnaflytjanleika.

2. Réttur á leiðréttingu og réttur til eyðingar
Þú átt möguleika á að biðja um leiðréttingu eða eyðingu persónulegra gagna, að því tilskildu að gildandi lagakröfum sé fullnægt. Réttur til eyðingar er háður ýmsum undantekningum, til dæmis þegar vinnsla persónuupplýsinga er nauðsynleg til að styðja við málaferli eða til að fara að staðbundnum varðveislukröfum.

3. Réttur til takmörkunar og réttur til að afturkalla samþykki
Við tilteknar aðstæður hefur þú rétt til að fara fram á takmörkun á vinnslu gagna um þig, t.d. þegar þú heldur því fram að persónuleg gögn um þig í kerfum okkar séu ekki rétt þegar við þurfum að staðfesta nákvæmni gagnanna.

Þú hefur rétt á að mótmæla vinnslu persónulegra gagna þinna og við munum hætta henni

  • ef við treystum á okkar eigin eða einhvers annars lögmæta hagsmuni til að vinna persónuleg gögn þín, nema
  • ef við getum sýnt nauðsynlegan lagagrundvöll fyrir vinnslu persónulegra gagna þinna.Ef þú andmælir vinnslu persónulegra gagna um þig í beinum markaðstilgangi munum við ávallt láta af vinnslu í slíkum tilgangi..

Þar sem sérhver vinnsla er byggð á samþykki geturðu átt rétt á að draga til baka slíkt samþykki hvenær sem er (án þess að það hafi áhrif á lögmæti vinnslunnar áður en samþykki var dregið til baka).

4. Réttur til að leggja fram kvörtun til lögbærra yfirvalda
Þú hefur rétt á að leggja fram kvörtun til lögbærs yfirvalds, einkum hjá gagnaverndaryfirvaldi sem er hæft fyrir búsetustað þinn eða leiðandi lögbæru yfirvaldi fyrir Schindler, þ.e.:

Persónuvernd
Rauðarárstíg 10
105 Reykjavík
Ísland / Iceland
Sími:´+354 510 9600
Postur@personuvernd.is


11. Hvernig verndum við persónuleg gögn

Öryggi og trúnaður um persónuleg gögn
Við erum skuldbundin til að geyma persónuleg gögn þín á öruggan hátt og við höfum innleitt viðeigandi upplýsingaöryggisstefnu, reglur og tæknilegar ráðstafanir til að vernda persónuleg gögn þín gegn óheimiluðum aðgangi, ranglegri notkun eða birtingu, óheimilum breytingum og ólögmætri eyðileggingu eða tapi fyrir slysni.

Allir starfsmenn okkar, samstarfsaðilar, ráðgjafar, starfsmenn og gagnavinnsluaðilar (þ.e. þeir sem vinna persónugögn þín fyrir okkar hönd, í þeim tilgangi sem gefinn er upp hér fyrir ofan), sem hafa aðgang að og eru tengdir við vinnslu persónugagna þinna eru skuldbundnir til að virða trúnað slíkra gagna.


12. Persónuleg gögn barna

Engin söfnun á persónulegum gögnum frá börnum
Schindler safnar ekki meðvitað upplýsingum frá börnum. Komist Schindler að því að barn hafi veitt persónuleg gögn, mun það nota ásættanlega viðleitni til að fjarlægja slíkar upplýsingar úr skránum.


13. Tenglar á aðrar vefsíður

Við getum veitt tengla á aðrar vefsíður en Schindler
Þessi persónuverndaryfirlýsing gildir einungis um síðurnar, og ekki um vefsíður sem eru í eigu þriðju aðila. Við getum veitt tengla á aðrar vefsíður sem við trúum að gætu vakið áhuga þinn. Samt sem áður getum við ekki ábyrgst persónuverndarstaðla slíkra vefsíðna og við afsölum okkur allri ábyrgð á þeim.

Þessari persónuverndaryfirlýsingu er ekki ætlað að gilda um neina tengda vefsíðu sem er ekki á vegum Schindler
Þegar þú opnar tengil á aðrar vefsíður ber að viðhafa varúð og lesa persónuverndarstefnur umræddrar vefsíðu.


14. Notkun á samfélagsmiðlaviðbótum

Hvað eru samfélagsmiðlaviðbætur (t.d. Facebook, Twitter, YouTube, Instagram eða LinkedIn)
Þessi vefsvæði kunna að nota viðbætur fyrir samfélagsmiðla. Viðbætur fyrir samfélagsmiðla gera vefsvæðum kleift að samþætta samfélagsmiðlavirkni, notendum til hægðarauka. Slíkar viðbætur fyrir samfélagsmiðla eru sjálfstæðar framlengingar á þjónustu viðkomandi samfélagsmiðils. Schindler hefur engin áhrif á eðli eða umfang gagna sem safnað er í gegnum slíkar viðbætur fyrir samfélagsmiðla og sem viðkomandi veitur varðveita. Ef þú notar viðbætur fyrir samfélagsmiðla sendir þú persónugreinanlegar upplýsingar til viðkomandi samfélagsmiðils.

Fyrirvari
Athugasemdum eða virkni frá einstaklingum sem nota samfélagsmiðlaviðbætur er ekki stýrt eða hún studd af Schindler og Schindler ber ekki ábyrgð á eða er skuldbundið gagnvart slíku. Einstaklingum sem deila efni Schindler í gegnum samfélagsmiðlaviðbætur er ekki heimilt að tala fyrir eða vera fulltrúi Schindler. Sýn þeirra og skoðanir verða taldar þeirra eigin og ekki á vegum Schindler.

Ákvæðin í skilmálum og skilyrðum okkar og í þessari persónuverndarstefnu sem tengjast tenglum á aðrar vefsíður gilda einnig um samfélagsmiðlaviðbætur.


15. Vefkökur og aðrar auðkenningarleiðir

Hvað er vefkaka
Vefkaka er lítil skrá með gögnum sem vefsíða geymir á tölvu gests eða farsíma. Vefkökur eru víða notaðar til að fá vefsíður til að virka, eða virka á hagkvæmari hátt, sem og til að veita upplýsingar til eigenda vefsíðunnar.

Notkun okkar á vefkökum
Vefsíður okkar nota vefkökur, myndeindatög og önnur form af auðkenningu og vinnusvæði (saman vísað í sem "Vefkökur" hér fyrir neðan) til að aðgreina þig frá öðrum notendum vefsíðu okkar og vefsíðna nets okkar. Þetta hjálpar okkur að veita þér góða upplifun þegar þú flettir í gegnum vefsíðuna okkar og vefsíður á neti okkar, og gerir okkur einnig kleift að bæta vefsíður okkar og þjónustu.

Þú getur fundið frekari upplýsingar um vefkökur sem við notum á síðum okkar með því að lesa Fótsporatilkynning og -stillingar.


16. Breytingar á þessari persónuverndaryfirlýsingu

Við áskiljum okkur rétt til að breyta þessari persónuverndaryfirlýsingu hvenær sem er. Við ráðleggjum þér að athuga þetta vefsvæði reglulega til að gá hvort breytingar hafi orðið.